Þegar núverandi ábúendur keyptu jörðina 1992 var hér vel rekinn kúabúskapur. Búið var strax stækkað nokkuð og lengst af voru tæpar 30 mjólkurkýr og 140.000 lítra framleiðsla. Um árabil var hér einnig rekið svokallað opið fjós og húsdýragarður með flestum íslensku húsdýrunum.
Heyskapur var lengst af hefðbundinn þ.e. þurrkun heys á velli en einnig var heyið rúllað og plastað. Korn var einnig ræktað síðustu ár.
Í ársbyrjun 2004 ákváðu ábúendur að hætta mjólkurframleiðslu eftir rúmlega 20 ára starf sem kúabændur. Jafnframt var tekin ákvörðun um að byggja um 50 manna hótel í áföngum næstu árin með því að breyta fjósi og hlöðu.