Þórisstaðir er fremur lítil bújörð í austanverðum Eyjafirði. Áður var kúabúskapur á jörðinni en nú er þar stunduð skógrækt og rekið sveitahótel. Hótelið er alveg við þjóðveg nr.1 sjávarmegin.

Merktar gönguleiðir eru niður í fjöru og uppí fjall. Við hótelið er skjólgóður skógarreitur þar sem hægt er að grilla og borða úti. Fjölbreytt fuglalíf er á svæðinu og ágæt aðstaða til að fylgjast með fuglum.



Stutt er í margvíslega afþreyingu m.a. á Akureyri ( 15km ). Nefna má hestaleigu, golfvelli, fjölbreytt söfn og sundlaugar auk góðra veitingastaða. Hotel Natur er miðsvæðis á Norðurlandi og því tilvalið að fara þaðan í skoðunarferðir svo sem í hvalaskoðun á Húsavík, Jarðböðin í Mývatnssveit, Síldarminjasafnið á Siglufirði, hestasýningar í Skagafirði og svo mætti lengi telja.