Þórisstaðir eru í eigu hjónanna Ingu Árnadóttur og Stefáns Tryggvasonar. Að auki vinna börn þeirra við reksturinn. Inga (1958) er kennari og hefur að auki háskólapróf í norsku og bókasafnsfræði. Stefán (1957) er skógarbóndi og menntaður búfræðikanditat (cand. agro.). Hann vinnur listhandverk úr eigin skógi á veturna.

Börnin eru Jóhanna (1978) starfsmaður við mannauðsdeild Alcoa Fjarðaráls, Tryggvi (1982) doktorsnemi í erfðafræði, Árni (1984) starfsmaður vinnumálastofnunar og mastersnemi, Þórir (1992) menntaskólanemi og Arnaldur (1996) grunnskólanemi.